Stikill 1-5
16.04.2010 13:40:44 / Stikill 4

Stikill í boði

 Stikill

Stikill 1 Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Saga frá upphafsárum, ávörp, bréf ljóð og hluti úr skáldsögu. Apríl 2005  

Stikill 2 Málfundafélagið Vísir og bygging þinghúss í Bólstaðarhlíð Útsvarsskrár, bréf manntöl, uppboð og fundargerðir 2006

Stikill 3 Bygging og vígsla Húnavers 1957. Jónas Tryggvason dagbók 1957, fundargerðir frá sveitarstjórn og fl. Maí 2007

Stikill 4 Aldarspegill frá 1870   áætlað  sept. 2009

Hóllinn Stikill skreytir forsíðu Stikils 4. Ljósmyndari Birgir Ingólfsson frá Bollastöðum 

Stikill 5 Bréf til Jónasar Illugasonar frá Kanada, bréf Elísabetar á Gili til Ingibjargar systur hennar í Síðumúla, manntal 1910 og dagbók Jónasar í Ártúnum frá árinu sem hann flutti til Blönduóss og gaf út ljóðabók sína: Harpan mín í hylnum. 

Á forsíðu Stikils 5 er mynd úr Blöndugili - án Blöndu, sem rennur um Blöndulón og kemur aftur í farveg sinn litlu um Eyvindarstaði. Á baksíðu sama heftis er foss í Rugludalsá þar sem hún kemur ofan í dalbotn Blöndudalsins. Ljósmyndari: Jón Björnsson frá Húnsstöðum 
 

Á myndunum á Stikli 4 og 5 sjást mót Blöndudals, Rugludals og Blöndugils. Blanda gróf sér leið gegnum hálsinn fyrir vestan Blöndudalinn SV af Steinárhálsi, sjá kort: http://ja.is/kort/#x=465042&y=538338&z=5



Nafn ritsins Stikill er sótt lengst fram í Blöndudal þar sem grjóthóll nokkur ber þetta skarpa örnefni. Hóllinn er nokkuð utan við mynni Rugludals, ofarlega í hlíðinni að austan. Hóllinn er á myndinni á forsíðu Stikils 4. Ljósmyndari Birgir Ingólfsson

Ritstjóri og útgefandi:

Ingi Heiðmar Jónsson

póstfang: stikill@hotmail.com

        gsm: 865-2586 & hs. 482-3777

                    Vefsíða: http://stikill4.blogcentral.is

Viljirðu kaupa hefti má greiða inn á reikning                  

0325-13-300641                   
kt. 010847-7299                                 

 Verð:
Stikill 5 kr.1500,
Stikill 4 kr.1200, 
Stikill 1-3 kr.1000 hvert 
auk póstkostnaðar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2010 17:44:23 / Stikill 4

Virðing á Hvammi

  Jóhann Fr. Sigvaldason hreppstj. í Mjóadal og Brynjólfur í Þverárdal voru virðingarmenn við úttekt á Hvammi á Laxárdal 1897. Nákvæmar lýsingar og mælingar og gerð grein fyrir framkvæmdum síðustu 9 ár: http://stikill.123.is/blog/record/446847/

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2010 22:42:53 / Stikill 4

Úr manntalinu 1870 - Hólasókn

Manntal 1870 Blöndudalshólar prestssetur

Markús Gíslason         prestur         giftur               32

Metta Einarsdóttir kona hans            gift                  31

Einar Markússon barn þeirra                                     6

Gísli Markússon barn þeirra                                      4

Kristjana Einara Markúsdóttir barn þeirra                 á 1. ári

Björg Guðmundsdóttir vinnukona    ógift                20

Björn Sigurður Friðriksson vinnumaður ógiftur        27

Guðrún Kristjánsdóttir          vinnukona ógift          17

María Jónsdóttir       vinnukona       ógift                26

Margrét Halldórsdóttir hreppsómagi                        10


E-nöfn úr manntalinu 1870

         Blöndudalshólasókn

Einar Markússon prestssonur Blöndudalshólum     6 ára

Elísabet Gísladóttir vinnukona Rugludal           19 ára

Einar Markússon prestssonur Blöndudalshólum     6 áraElísabet Gísladóttir vinnukona Rugludal           19 ára

Elísabet Pálmadóttir eiginkona Eyvindarstöðum 46 ára

Engilráð Jónsdóttir barn hjóna Þröm                7 ára

Engilráð Sigurðardóttir barn hjóna Eldjárnsstöðum 17

Engilráð Sigurðardóttir eiginkona Eldjárnsstöðum 74 ára

Erlendur Gíslason barn hjóna Eyvindarstöðum 14 ára

Erlendur Pálmason barn Brandsstöðum 6 ára

Eyjúlfur Jónasson niðursetningur Bollastöðum 13 ára


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2010 08:57:05 / Stikill 4

Jón í Ártúnum

   

                                                        Jón afi minn

,,Ertu þarna stubba mín,” segir afi með sinni góðlegu röddu. Ég hleyp til hans þar sem hann liggur í sófanum. Hann tekur mér opnum örmum eins og alltaf. Góðleg augu, vingjarnlegt bros hans og hlý hönd gerðu það að verkum að öll börn hændust að honum. „Hvernig er veðrið úti?” spyr hann. Ég segi honum það ásamt helstu fréttum.  Ég leggst hjá honum og hann segir mér sögur eða vísur. „Það sem ég meina, sérðu, sko, vertu ekki að neinu rugli: Bara að reyna að drepa tvo steina með einum fugli.” Ég segi honum að hann hafi farið með þessa vísu fyrir mig áður en hann rámar ekkert í það.

       Um kvöldið horfum við á barnatímann. Táknmálsfréttirnar á undan barnatímanum þykja mér alltaf ósköp leiðinlegar. Afi segir mér þá hvað hann heldur að þulurinn sé að segja og lætur þannig þessar 10 hryllilegu mínútur vera örfljótar að líða. Eftir kvöldmat sest ég við píanóið hjá ömmu og afa og byrja að æfa mig. Afi er  fljótur að láta mig vita ef honum  finnst eitthvað ekki hljóma rétt. Ég hlusta á það sem hann hefur að segja enda hafði hann mikið vit á tónlist, búinn að vera kórstjórnandi og undirleikari hátt í 50 ár . 

           Afi býður góða nótt og kveðst vera farinn að sofa. Þetta átti ég alltaf í erfiðleikum með að skilja. Rétt byrjað að kvölda og hann sofnaður. En eldsnemma á morgana þegar allir hinir á bænum voru í fastasvefni fór hann á fætur og hugaði að kindunum.  Svo settist hann ef til vill út fyrir og naut kyrrðarinnar í náttúrunni.

       Áður en veikindin heltóku afa kom hann oft heimsókn til mín og foreldra minna.  Það var ekki langt fyrir hann að fara þar sem við bjuggum í næsta húsi. Í heimsóknum sínum var hann fljótur að koma mér upp á lagið að drekka kaffi. Við sátum margar stundir við eldhúsborðið, sötruðum kaffi og fórum óspart með sykurmolana enda voru þeir undirstaða góðs kaffisopa.  Þar sem ég sat og naut þess að vera hjá afa, veitti ég því aldrei eftirtekt hvernig dökka hárið hans var byrjað að grána, hvernig bláu augun voru byrjuð að missa lit og hvernig hendur hans sem héldu fast utan um kaffibollann voru byrjaðar að hrörna. Afi hafði alltaf þessa miklu lífgleði og jákvæðni að bera sem olli því að sú staðreynd að hann væri farinn að eldast gleymdist.

            Ævi afa einkenndist ætíð af hraustleika.Það var ekki fyrr en um áttrætt að hann veiktist af sjúkdómnum Alzeimer. Þá var það ég sem kom til hans og las fyrir hann ljóð, oft sama ljóðið dag eftir dag. En það var ekki það sem skipti máli, heldur að maður kom og naut þess að vera hjá honum.Þrátt fyrir að sjúkdómurinn eyddi út mörgum af hans minningum þá mundi hann alltaf hinn ótrúlegustu ljóð, kvæði og sögur.

        Meðan afi lifði og jafnvel eftir að hann er látinn er mikið talað um hvað hann var góðhjartaður maður. Hann hugsaði alltaf um alla aðra á undan sér og ef maður var í vandræðum með eitthvað, leitaði maður til hans og hann hjálpaði manni þá eftir sinni bestu getu. Ég áttaði mig ekki á því þegar ég var lítil hvað ég var heppin að eiga þennan frábæra afa, en ég geri það núna og er ótrúlega þakklát fyrir að eiga allar þessar minningar með honum.

                                                                  Sigurdís Tryggvadóttir Ártúnum 
                                                                               17 ára nemi í MA
                                                         Flutt á fjölskyldumóti í Ártúnum 26. júní 2010



Skrá yfir tónlist í þættinum:

Ástin á tímum ömmu og afa – Anna Hinriksdóttir

RÚV, Hljóðvarp – Fyrri þáttur, upptaka 1. mars 2010

 

1 - Draumalandið

Einar Kristjánsson

GE 11428 -  #6    = >> 0:45

 

2 - Ég lít í anda liðna tíð

Sigurveig Hjaltested (Útvarpsperlur)

GE 20490 -  #  27

= >> 0:37

 

3 - Minni Reykjavíkurbæjar (Yfir fornum frægðarströndum)

Kór Langholtskirkju (Ísland er lýðveldi)

GE 8775 -  #  21   = >>  0:48

 

4 - Sprettur (Ég berst á fáki fráum)

Karlakór Reykjavíkur (Hraustir menn)

GE 16862 -  # 19   = >>  0:40

 

5 - Vormenn Íslands

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps (Tónar í tómstundum)

L-20222 – Hlið 2, # 1   = >>  0:25

 

6 - Í Hlíðarendakoti (Fyrr var oft í koti kátt)

Þuríður Pálsdóttir (Fljúga hvítu fiðrildin)

GE 20043 -  # 20   = >>  0:26

 

7 - Yfir voru ættarlandi

Kór Áskirkju (Það er óskaland Ísland)

AH -  # 5   = >>  0:25

 

8 - Svanasöngur um heiði (Ég reið um sumaraftan einn)

Karlakór Reykjavíkur og Guðrún Á. Símonar (Hraustir menn)

GE 16862 -  # 4

= >>  0:44

 

9 - Minni Ingólfs (Lýsti sól)

Kór Áskirkju (Það er óskaland Ísland)

AH -  # 3

= >>  0:40

 

10 - Leitin

Kristín Sædal Sigtryggsdóttir (Draumalandið)

GE 9635 -  #  5

= >>  0:25

 

11 - Ég vil elska mitt land

Karlakórinn Jökull (Í jöklanna skjóli)

GE 17361 - # 11

= >>  0:30

 

12 - Til fánans (Rís þú unga Íslands merki)

Kór Langholtskirkju (Ísland er lýðveldi)

GE 8775 -  # 4

= >>  0:53

 

13 - Blessuð sértu sveitin mín

Íslenski kórinn í Gautaborg (Heima og að heiman)

GE 17730 -  #  15= >>  0:20

 

14 - Tvær hausstökur (Sumri hallar)

Guðrún Tómasdóttir (Íslensk þjóðlög)

GE 27776 -  # 22

= >>  0:43

 

15 - Þótt þú langförull legðir

Kór Áskirkju (Það er óskaland Ísland)

AH -  # 23

= >>  0:47

 

16 - Rósin

Elsa Sigfúsdóttir (Óskastundin)

GE 20176 - # 5

 = >>  0:38

 

17 - Þorraþrællinn (Nú er frost á Fróni)

Karlakórinn Þrymur (Húsavík)

L-10026 -  Hlið I, # 9

= >>   0:29  

 

18 - Ég bið að heilsa

Tígulkvartettinn

GE 14622 -  #  25

= >>   0:40

 

19 - Sólskríkjan (Sú rödd var svo fögur)

Rannveig Fríða Bragadóttir (Íslenska einsöngslagið)

GE 16000 -  # 24

= >>  0:39

 

20 - Í fjarlægð

Gunnar Guðbjörnsson (...og Jónas Ingimundarson...)

GE 6073 -  # 8   

= >>  (2:03 í allt)




» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2010 16:31:05 / Stikill 4

Bragaþing 2010 á Grand hótel Rv.

Bragaþing 2010 - landsmót hagyrðinga
 
Hið árlega og bráðskemmtilega Bragaþing er framundan, en það verður, eins og alþjóð veit, haldið laugardaginn 28 ágúst á Grand Hótel. Nú þegar hafa eitursnjallir hagyrðingar boðað komu sína, þ.á.m. Friðrik Steingrímsson, Ósk Þorkelsdóttir, Pétur Pétursson, Einar Kolbeinsson, Hólmfríður Bjartmarsdóttir og Árni Jónsson.
Fjölbreytt skemmtidagskrá verður á þinginu. Heiðursgesturinn Þórarinn Eldjárn flytur hátíðarræðu, nokkrar glæsilegar konur úr Kveðanda mæta á svæðið, fluttar verða rímur undir stjórn Sigurðar Sigurðarsonar, Húnvetningar og Þingeyingar heyja einvígi, hraðyrkingakeppni er á dagskránni og „Vísur gesta“ þar sem yrkisefnin eru 2, þ.e. JÓN og RÁN.

Húsið verður opnað kl. 18.30 og borðhaldið hefst kl. 19.30 
 
Veislustjóri verður Pétur Blöndal, blaðamaður.
 
Missið ekki af frábæru móti.
 
Vinsamlega tilkynnið þátttöku sem fyrst og helst ekki síðar en 21 ágúst síma 8245311 eða á póstfang: sigrunhar@simnet.is
 
Nánari Upplýsingar:
 
Matseðill:
Forréttir:
Grafinn lax
Heitreyktur lax
Grænmetis sushi
Rækjur og hörpuskel í tómatvinaigrette
Villibráðasalat með melónum og furuhnetum
Nýbakað brauð, pestó og hummus
 
Kaldir aðalréttir:
Léttsteikt nautakjöt (roast-beef)
Kjúklingaspjót með engifer-chili sósu/
 
Heitir aðalrétti:
Lambalæri með ferskum kryddjurtum/
Kalkúnabringa ávaxta & spínatfyllt/
Blandað grænmeti, úrval af meðlæti og sósum/
 
Kaffi, te og konfekt/
 
Verð kr. 5700
 
Gisting:
2ja mann herbergi kostar 16.500 krónur.
 
Athugið að panta gistingu tímanlega því að fjöldi herbergja á þessu verði er takmarkaður.
Hótelið er sérlega glæsilegt og herbergin falleg.
 
 
http://www.grand.is/islenska/

 Sjá Fésbókina: http://www.facebook.com/event.php?eid=146897885337225






























 
Fundur á Gauksmýri síðasta sunnud. í febr.                 - fyrirsögn
    Sögufélagið boðar til fræðslufundar á Gauksmýri sun. 28. febr. kl. 14. Gestur fundarinn verður Jón Torfason sagnfræðingur, sem rannsakað hefur húnvetnska sögu um árabil og gaf m.a. út Húnvetningasögu Gísla Konráðssonar.

Jón nefnir fyrirlestur sinn
Gísli Konráðsson og samtímamenn hans
             beggja vegna Vatnsskarðs.

Kaffi og meðlæti eða molakaffi verður á boðstólum hjá ferðaþjónustunni á Gauksmýri, og kostar 1.000 kr. m/brauði.

Allir eru velkomnir og áhugamenn um sögu og menningu sérstaklega hvattir til að koma að Gauksmýri þennan síðasta sunnud. í febr., fræðast um sögu héraðs, sýna sig og sjá aðra. Einnig skal bent á ódýran og og góðan kvöldverð hjá Guðmundi vert í Víðigerði fyrir þá sem sækja langt að.

 Tilkynningin hér að neðan var birt í mars 2010, en er  nú flutt aftur í febrúarmánuð til að rýma fyrir.

   Næsti fundur Sögufélagsins verður að Gauksmýri lau. 27. mars kl. 14., þ. e. laugard. fyrir pálmasunnud.

    Þar verður nýtt sögukort Vatnsdælu til umræðu og höfundur þess Pétur Jónsson heldur fyrirlestur sem hann nefnir Á slóð Vatnsdæla sögu – sögukort og minjar í Vatnsdal og Þingi.
 

Vatnsdælasögu má nálgast á netinu: http://www.snerpa.is/net/isl/vatnsdae.htm


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2010 06:16:47 / Stikill 4

Aðalfundur kl. 15

  Aðalfundur Sögufélagsins Húnvetnings var haldinn í kaffihúsinu Við árbakkann sun. 31. jan. kl. 15, en þá var bronsið í handboltanum hartnær komið í hús. Í nýkjörinni stjórn eru:

form.: Ingi Heiðmar Jónsson stikill@hotmail.com
gjaldkeri: Valgerður Guðmundsdóttir
ritari: Gréta Björnsdóttir
varaform.: Gunnlaugur Sigmarsson
meðstj.: Björk Axelsdóttir,
Ingibergur Guðmundsson og
Þorleifur Ingvarsson 

Umræðuefni á sögufélagsfundi 31/1 ´10 voru m.a. um ættstuðla sem Guðm. Sigurður hefur rakið og unnið og ráðgert er að gefa út á vegum félagsins.

1. Eiðsstaðaætt er rakin frá hjónunum Jóni Bjarnasyni og Sesselju Sigurðardóttur, sem bjuggu á Eiðsstöðum í Blöndudal um aldamótin sautján hundruð.

2. Guðlaugsstaðaætt er rakin frá hjónunum Birni Þorleifssyni og Ólöfu Sigurðardóttur, sem bjuggu á Guðlaugsstöðum í Blöndudal um aldamótin sautján hundruð.

3. Merkurætt er rakin frá hjónunum Jóni Jónssyni og Guðríði Hannesdóttur, sem bjuggu á Stóru-Mörk á Laxárdal fremri á fyrri hluta átjándu aldar.

4. Skeggsstaðaætt er rakin frá hjónunum Jóni Jónssyni og Björgu Jónsdóttur, sem bjuggu á Skeggsstöðum í Svartárdal á átjándu öld.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2010 08:03:04 / Stikill 4

Sögufélagið Húnvetningur

  Aðalfundur Sögufélagsins Húnvetnings verður á Blönduósi sun. 31. jan. í kaffihúsinu Við árbakkann kl. 15. Verið velkomin.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.12.2009 13:35:26 / Stikill 4

Nýárskveðjur

  Stikill sendir lesendum sínum og styrktarmönnum óskir um gæfuríkt nýtt ár og þakkar góðan stuðning á þessu sem nú er að ljúka.

   Megi árið 2010 færa samfélagi okkar réttsýni, kjark og heiðarleika.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2009 14:18:50 / Stikill 4

Stikill - styrktarmenn

         Styrktarmenn Stikils frá nóv. 2009 - mars 2010: 


2011
dag/mán
Þorgrímur G. Pálmason
2010
dag/mán
des. Ólöf Þórarinsdóttir kennari
júlí   Þóra Kristjánsdóttir
1/6  Sigrún Þórey Hjálmarsdóttir
6/4  Jón Þorbjörnsson
16/3 Heimir Finndal Guðmundsson
2/3   Sigurjón Guðmundsson      
26/2 Sigurður Haraldsson
26/2  Ingvar Þorleifsson      
19/2  Sigurpáll Árnason
15/2  Ásdís H. Magnúsdóttir
5/2    Elín Bjarnadóttir
25/1 Engilráð Margrét Sigurðardóttir
25/1  Anna Axelsdóttir
24/1  Þorsteinn H. Gunnarsson
23/1  Ingibjörg Axelsdóttir
20/1  Ingibjörg Gunnarsdóttir
20/1  Ingibjörg Eggertsdóttir
17/1  Ingimar Halldórsson
17/1  Anna Hinriksdóttir
15/1  Jóhann Guðmundsson Holti
15/1  Elín Bjarnveig Sveinsdóttir
15/1  Gunnhildur Skaftadóttir
11/1  Guðmunda Guðmundsdóttir frá Eiríksst.
11/1  Karl Sigurgeirsson
8/1     Hákon Sigurgrímsson
8/1     P
étur I. Pétursson
7/1     Svanhildur F. Guðmundsdóttir
6/1     Grétar Guðmundsson
6/1     Guðm. Stefánsson Hraung.
4/1    
Jóhann Þ. Bjarnason
4/1     Fanney Magnúsdóttir

2009
30/12 Jón Bjarnason
29/12 Ævar Þorsteinsson
29/12 Bjarni Pálsson
23/12 Steinn Leó Rögnvaldsson
22/12 Harpa Rannveig Helgadóttir
21/12 Lárus Þórðarson
18/12 Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir
15/12 Þorsteinn Þorsteinsson
14/12 Sigþrúður Friðriksdóttir
14/12 Ægir Frímann Sigurgeirsson 
14/12 Guðrún Sigvaldadóttir 
14/12 Guðríður Bjargey Helgad   
11/12 Rafn Georg Sigurbjörnsson 
11/12 Stefán Böðvarsson   
11/12 Skarphéðinn Ragnarsson
10/12 Ingibjörg Vilhjálmsdóttir
8/12  Sigurður Bjarnason                        
8/12  Kolbrún Zophoníasdóttir                
7/12  Páll Pétursson                                
7/12  Unnur Björk Gísladóttir                
7/12 Svanur Guðmundsson                   
4/12 Jón Örn Berndsen                          
4/12 Ingibergur Guðmundsson              
4/12 Gréta Björnsdóttir                          
3/12 Guðrún Pálmadóttir                        
3/12 María Hrólfsdóttir                         
3/12 María Magnúsdóttir                    
3/12 Auðólfur Gunnarsson                   
2/12 Árni Sigurjónsson                
2/12 Árni Bjarnason                               
2/12 Þórey Jónsdóttir                             
2/12 Jón Helgason                                
1/12 Stella Þ. Guðmundsdóttir             
1/12 Kolbrún Zophoníasdóttir                  
1/12 Engilráð Margrét Sigurðardóttir     
1/12 Árni Gunnarsson                          
1/12  Magney Steingrímsdóttir
30/11 Guðný Bergþóra Tryggvadóttir   
30/11 Margrét Jónsdóttir Kringlukoti       
           Stefán M. Gunnarsson        
29/11 Sonja Wium Brynjólfsdóttir
29/11 Benedikt B. Lárusson       
28/11 Ásgerður og Ágúst Geitaskarði   
28/11 Sigríður Dögg Guðmundsdóttir   
27/11 Hjalti Þórðarson       
27/11 Kolfinna og Hinrik Bjarnason   
27/11 Ingibjörg og Páll Þórðarson       
27/11 Guðrún Steingrímsdóttir   
27/11 Erla Hafsteinsdóttir   
26/11 Birgir Már Pétursson       
26/11 Helga Ingimarsdóttir og Vignir Ásmundur Sveinsson   
26/11 Jón Helgi Hálfdanarson   
26/11 Ragnhildur og Sigurður H. Pétursson           
26/11Trausti Steinsson                    
25/11 Sigurjón Stefánsson               
25/11 Sigursteinn Bjarnason            
25/11 Tryggvi Jónsson                      
25/11 Ragnheiður Guðmundsdóttir   
25/11 Ásgeir og  Elín Fjóla Þórarinsdóttir        
24/11 Guðrún Jónsdóttir frá Björk   
23/11 Magnús Steingrímsson            
22/11 Valgerður Guðmundsdóttir   
21/11 Ólöf Una Jónsdóttir                  
20/11 Hængur Þorsteinsson            
20/11 Guðrún Þóranna Jónsdóttir   
20/11 Ágústa Þorkelsdóttir            
19/11 Steingerður Jónsdóttir      
19/11 Eðvarð Hallgrímsson           
18/11 Ása Jóhannsdóttir                
18/11 Margrét Kristinsdóttir            
17/11 Klara Sólveig Jónsdóttir        
17/11 Ríkharð Bjarni Björnsson        
16/11 Gerður Jónína Hallgrímsdóttir
16/11 Hanna Dóra Pétursdóttir          -
11/11 Hrafn Þórisson                           
11/11 Ingibjörg Bjarnadóttir              
10/11 Hallveig Björnsdóttir           

Frímerki hafa verið keypt fyrir um 70.000


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 8518